|
|
|
|
Gæðastefna
|
|
|
|
|
|
|
|
- Bernhöftsbakarí er handverksbakarí og þar starfa eingöngu fagmenn við baksturinn sem tryggir að öllum ítrustu hreinlætis- og gæðastöðlum er framfylgt til fullnustu.
- Öll brauð eru eggja-, mjólkur og sykurlaus. Einnig notum við eins lítið ger og salt eins og mögulegt er því öll okkar brauð eru “langhefuð“ upp á gamla mátann.
- Við notum fordeig og súrdeig í okkar brauð sem tryggir meira bragð og betri skorpu.
- Eina E-efnið í brauðunum okkar er C-vítamín, en þar er notað sem kekkjavarnarefni í hveiti.
- Ekta súkkulaði er notað í alla þá vöru, sem hægt er.
- Við notum eingöngu 100% íslenskan ost í okkar vöru sem og íslenskt smjör þar því verður viðkomið. Öll olía og smjörlíki er transfitufrí.
- Við notum millisterkt hveiti, sem tryggir viðskipavinum okkar safaríkt og ferskt brauð, sem endist vel og lengi, en þornar ekki upp eftir daginn. Við notum eingöngu 100% spelt í speltbrauðin okkar.
- Þegar kemur að gæðum, duga engar málamiðlanir. Aðeins besta hráefnið er nógu gott sem sannar slagorð bakaríssins til 50 ára:
Góð brauð - Góð heilsa |
|
|
|
|
| | Bernhöftsbakarí ehf. | Bergstaðarstræti 13 | Sími: 551-3083 | Fax: 551-3088 | Kt: 691276-0319 | info@bernhoftsbakari.is | |
|